Klejtrup city

27.07.2009 05:51:06 / erlaogfinn

Loksins!

Já, já ég veit það er langt síðan ég hef skrifað hér inn (alltaf á fésinu)

Ég og stelpurnar erum í sumarfríi ennþá, en Finn byrjaði í skólanum hér í morgun. Þetta er síðasta skipti sem hann er í skólanum áður en hann tekur sveinsprófið.

Andrea kemur heim á föstudagskvöldið og hlökkum við mikið til að fá hana heim:haha:
Við höfum ekki ferðast neitt í sumarfríinu en farið nokkra dagstúra til t.d. Legolands og Aalborg zoo.
Dagbjört byrjar á leikskólanum 3. ágúst og hlakkar mikið til (sérstaklega að hafa nestisboxið með;))
Eftir sumarfríið byrja ég að vinna aftur í Møldrup og það verður rosalega gott, þá er styttra að keyra í vinnu.
Það er byrja að grafa í grunninum okkar, og vonum við að við getur brátt byrjað að byggja, það verður alveg frábært:haha:
Annars bara allt gott og ég bið að heilsa ykkur öllum. (nýjar myndir komnar inn)

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2009 17:25:12 / erlaogfinn

Myndir

Var að setja inn nýjar myndir:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2009 15:27:06 / erlaogfinn

Hæ hæ

 Allt gott að frétta héðan eins og vanalega og allir nokkuð hressir.

Nóg að gera í vinnuni bæði hjá mér og Finn og það er auðvitað hið besta mál.

Andrea á enn eftir einn mánuð í skólanum og er nóg að gera hjá henni þar og í frístundunum.

Röskva er eins og hún á að sér að vera og um daginn sat hún úti í rigningunni undir regnhlíf og litaði í litabók, hef aldrei séð neinn gera það áður en hún deyr nú seint ráðalaus þessi elska;)

Dagbjört byrjar í leikskólanum eftir sumarfríið og verðu gott að þurfa bara áð afhenda börn á einum stað á morgnanna, hún er alveg hætt að nota bleyjur en er enn nokkuð ánægð með snudduna sína;)

Nýjar myndir hér fyrir neðan endilega kíkið á þær

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2009 17:13:46 / erlaogfinn

Loksins!!!!

Já loksins kemst ég inn á vefstjórnina og get skrifað hér inn aftur:d

Héðan er allt bara gott að frétta, ég er farin að vinna hjá Echo elektroniks í Hadsund og líkar mjög vel, margar af stelpunum sem ég vann með hjá Skals Elektronik eru lánaðar þangað svo ég er mikið að vinna með sama fólkinu og áður.

Við hjónakornin vorum í heimsókn hjá þeim Helgu og Pétri í gær, fengum óskaplega gott að borða og áttum við yndælt kvöld með þeim, Takk fyrir okkur elskurnar, og takk fyrir að ég fékk að fá junior spurningarnar;) (það var gott að Pétur fékk hefndina:haha:)

Í vorum við svo með börnunum okkar og tengdó í roldskov þar sem var "skovens dag" Þar var mikið um að vera og nutum við dagsins.

Eftir mikin hita og þurk er loksins komin rigning og var komin tími til8)

Vona að þið hafið það öll gott


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 19:44:05 / erlaogfinn

Hæææ

Héðan er það helst að frétta að frá 2. apríl er ég atvinnulaus nema að ég fái fljótt nýja vinnu, er alveg bjartsýn á að það gangi upp.

Finn er í skóla núna og gengur vel, við stefnum á húsbyggingar í sumar, en óvissan í atvinnumálunum gerir það að verkum að við drögum lappirnar aðeins.

Andrea er hress og dugleg stelpa sem hefur nóg að gera.

Röskva er MJÖG dugleg stelpa og er að fullorðnast svolítið núna, "heyrir betur" og hlýðir oftar;)

Dagbjört er alveg eins og Röskva var á hennar aldri "heyrir ekkert" og hlýðir engu;)

Allar eru þær auðvitað yndislegar og fallegar:haha:

Setti nýjar myndir inn í dag.

» 16 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 14:21:56 / erlaogfinn

Það er gaman að þessu

Hæ þið öll.
Héðan er allt gott að frétta og allir þokkalega hressir.

Ég var í starfsmanna veislu í gær þar sem við fengum mikið og gott að borða og að drekka (Ég var á bíl svo ég drakk mest bara vatn), það var skemmtiatriði þar sem að það kom maður og kendi okkur "stomp"  við vorum öll með fötur bundnar á okkur og með tvo kjuða sem við börðum alls lags takta með, þetta var alveg ofboðslega skemmtilegt og mikið hlegið, sem var alveg nauðsynlegt fyrir okkur, þegar allt hefur verið svo erfitt í vinnuni undanfarið.

Um síðustu helgi á laugardeginum, fórum ég og stelpurnar í Viborg legeland með vinkonu minni úr vinnuni og dóttur hennar, það var voða gaman, stelpunum kom vel saman og skemmtu sér vel. Seinna sama dag fórum við Finn út að borða í Viborg og í bíó á eftir, sáum sænsku myndina um manninn sem hatar konur, veit ekki hvort að bækurnar hans Stig Larsen hafa verið jafn vinsælar heima á Íslandi og hér, en myndin er gerð eftir fyrstu bók af þremur sem hann hefur skrifað um sömu persónurnar. Alveg rosalega góð mynd og mjög spennandi, alls ekki nauðsynlegt að hafa lesið bókina til að horfa á myndina, svo ég mæli eindregið með henni.

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2009 12:43:51 / erlaogfinn

Ekki gott

Nýjustu fréttir, 5 manns í viðbót sagt upp í vinnuni á fimmtudaginn, í alls þá 13 manns.
Ég er enn með vinnu, en maður veit nú aldrei nema að það verði fleiri sem fá uppsögn þegar á líður.

ÞAÐ SNJÓAR.

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2009 14:52:36 / erlaogfinn

Júhú og jibbí

Já, já, ég er eins og Stebbi bróðir, þegar ég loksins skrifa inn færslu þá skrifa ég margar:haha;). Vildi bara láta ykkur vita að í dag, er meiri snjór hjá mér en það er á Kópaskeri, allavega eftir því sem ég fæ best séð á vefmyndavélini þaðan. Það hefur nefnilega snjóað í allan dag, alveg DÁSAMLEGT:haha::haha::haha:.

Helda bara að þetta hafi verið besta lagið sem var valið í eurovision, glæsileg stúlka hún Jóhanna Guðrún og með fanta góða rödd.

Bless í bili.

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 16:54:35 / erlaogfinn

veit ekki alveg..

Hæ þið öll.
Héðan er allt gott að frétta og allir hressir.
Við fórum í göngutúr í dag í Troldeskov, veðrið var bjart og fallegt, reyndar svolítið kalt en við vorum vel klædd. Röskva vildi helst klifra upp í öll tré sem hún sá, svo að stundum komumst við frekar hægt áfram. Við tókum með okkur heitt kakó og pylsur í hitabrúsum, og þegar við vorum búin að ganga nutum við þess að fá heitt í kroppinn, það var svolítið spes að sytja úti og borða um miðjan vetur en afskaplega notalegt. Og akkúrat núnna er Finn úti að grilla, hitinn er við frostmark og við erum alveg örugglega eina fólkið í Klejtrup sem erum að grilla núna:haha:.

Aðeins að eurovision,
ég fylgdist að sjálfsögðu með keppnini hér í Danmörku og hélt nú svolítið með henni Heru Björk, en verð nú að viðurkenna að mér fannst lagið sem vann betra, reyndar finnst mér lagið sem vann bara mjög gott svo að ég held að ég haldi með Danmörku í ár, því að mér finnst lögin sem eru komin áfram á Íslandi alls ekki góð og get ekki fundið neitt sem mér finnst betra en hin lögin. En ég mun nú samt fylgjast með í kvöld.

Vona að þið hafið það gott og gleðilegan valentínusar dag;).

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 19:06:58 / erlaogfinn

Uppsagnir

Hjá Skals elektronic þar sem ég er að vinna, eru að meðaltali um 50 starfsmenn, í dag fengu 8 manns þar uppsagnarbréf. Ég hef enn vinnu, en mér líður eins og að einhverju hafi verið kastað í áttina að mér en ég náð að beygja mig niður áður en það hitti mig, og það lennt í manneskjuni sem stóð fyrir aftan mig í staðin. Ég er að sjálfsögðu glöð yfir að hafa sloppið, en mikið óskaplega finn ég til með þeim sem urðu fyrir þessu.

Fyrir ekki svo löngu vorum við í launasamtali, og sumar stelpurnar voru eitthvað að pirra sig á hvað við fengum lítið út úr því, ég sagði þá við þær, að eftir ekki svo margar vikur myndu þær bara vera glaðar yfir því að hafa vinnu yfirleitt, ég hafði víst rétt fyrir mér, en get nú ekki sagt að það gleðji mig neitt sérstaklega mikið.

Kossar og knús til ykkar allra.

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 10:41:30 / erlaogfinn

Svona voru jólin

Hæ þið öll, nú er síðasti dagurinn í jólafríinu og kominn tími til að skrifa eitthvað hér inn.

Ég var að vinna til þrjú á þorláksmessu og kom svo heim og skúraði stofugólfið. Jólatréð var svo sett inn, og ég og stelpurnar skreyttum það svo um kvöldið, margir sem ég tala við hafa mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig jólatréð á að líta út, bara ákveðnir litir og svona, en við höfum haft það fyrir hefð að stelpurnar fá að skreyta það eins og þær vilja, og það er eitthvað sem þær hlakka til á hverju ári.

Á aðfangadag fór Finn með stelpurnar heim til tengdó til að ná í pakka og á meðan kláraði ég að gera hreint. Kl. 16.00 fór ég svo með stelpurnar í kirkju og Finn var heima að elda matinn. Þetta árið vorum við bara ein heima í fyrsta skipti á aðfangadagskvöld það var notalegt og gekk vel. Við borðuðum hamborgarahrygg og var hann mjög góður.
Þegar við vorum búin að borða dönsuðum við í kringum jólatréð og sungum jólalög (það er hefð hér) og þar á eftir opnuðum við pakkana, stelpurnar óuðu og æuðu við hvern pakka og voru glaðar með sitt, ég var líka ákaflega ánægð með mitt ég fékk þrjár bækur (eina á íslensku jibbííí), tvo geisladiska (Josh Groban og Keane), sokka, drykkjarkönnur, ilmvatn og Deo. Við fengum svo málverk frá Röskvu sem hún málaði á leikskólanum, það er sjálfsmynd og er alveg ótrúlega flott.

Annan í jólum fengum við Pétur og Helgu hér í kvöldmat og var það alveg rosalega gaman, eftir að stelpurnar voru farnar í bólið sátum við og spiluðum og höfðum það huggó, Takk kærlega fyrir heimsóknina þið tvö, sjáumst vonandi fljótt aftur.

28. des. vorum við svo öll boðin til tengdó (þ.e. Finn, systur hanns og fjölskyldur)
þar var borðað mikið og farið í göngutúr.

Annars höfum við bara haft það rólegt milli hátíðanna farið í göngutúra og svona, það hefur verið mjög gott veðu hér um hátíðarnar, hiti við frostmark og stillt veður.

Á gamlárskvöld vorum við svo heima hjá tengdó borðuðum aftur mikið, sprengdum smá, og drukkum aðeins freyðivín.

Ég elska að fá myndir af börnum í jólakortum, svo takk þið öll sem senduð myndir það er gaman að geta fylgst aðeins með.

Er búin að setja fullt af NÝJUM MYNDUM inn á myndasíðuna hér fyrir neðan svo kíkið á þær.
 
Gleðilegt nýtt ár þið öll.

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 09:07:53 / erlaogfinn

Jólakort

Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, þökkum fyrir allt gamalt og gott á liðnum árum.

Kveðja
fjölskyldan í Klejtrup.

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.12.2008 16:45:50 / erlaogfinn

Jólin, jólin.

Hæ þið öll.
Það er langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna inn.

Allt gott að frétta af okkur eins og vanalega,við erum hress að mestu. Höfum að vísu verið að slást við ælupest að undaförnu en það er nú bara betra að fá hana núna en um jólin.

Finn hefur verið að vinna mjög mikið síðustu vikur, kemur seint heim og er oft að vinna aðeins á laugardögum líka, ótrúlegt hvað þeir hafa mikið að gera, nú þegar flest byggingarfyrirtæki eru að draga saman og hafa minna og minna að gera, en það er auðvitað bara gott fyrir okkur.

Andrea hefur líka verið mikið upptekin í þessum mánuði, kórinn hennar er að syngja alla sunnudaga og þau syngja við tvær messur á aðfangadag.

Ég hef verið að fá mikið hrós fyrir hversu stilltar og prúðar dömurnar mínar eru undanfarið, og get ég nú ekki varist því að hugsa að fólkið ætti nú bara að sjá hvernig þær haga sér heima hjá sér, en sjálfsagt ætti maður bara að vera ánægður með, að það sést ekki til þeirra;). Veit nú svosem ekki hvað ég að skrifa meira í bili, það koma einhverjar myndir inn um jólin.

Bestu jólakveðjur til ykkar allra.

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 21:00:37 / erlaogfinn

Myndir

Ekki tókst að setja inn myndir hjá blogcentral, svo að við erum komin með myndasíðu hjá google, og þar er ég búin að setja inn nýjar myndir. Klikkið bara á myndir hér fyrir neðan.
Bestu kveðjur til ykkar allra.

» 10 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 13:31:41 / erlaogfinn

Það helsta.

Jæja þá er ég búin á námskeiðinu, og útvarpið virkaði eins og það átti að gera og þetta gekk allt mjög vel. Það er búið að vera gaman að taka þátt í þessu námskeiði og það var hálf skrítið að mæta bara í vinnuna hér í morgun.

Annars bara allt gott að frétta. Ég er fór í kirkju með Andreu í gær, en hún æfir með kirkjukórnum hér í Klejtrup (barnakirkjukór) og í gær söng hún í fyrsta skipti í kirkjunni, það gekk mjög vel.

Röskva og Dagbjört eru ávallt sprækar, Röskva er líkt og Andrea í fimleikum og líkar bara vel.

Ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir, þar á meðal myndir af afrakstrinum af námskeiðinu en það gekk ekki upp hjá mér, læt vita ef mér tekst það.

Allir að kvitta hjá Ellu dagur í dag (alveg sama hvaða dagur er þegar þið lesið þetta;))

» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
myndasíða